menu-iconlogo
logo

Leiðin liggur ekki heim

logo
Lyrics
Við sjónarhringinn bátur bíður

Við bakkann bundinn og tíminn líður

Kolsvört dögun og eitt orð

Ertu tilbúinn að fara um borð?

Við endamörkin máninn gulur

Í myrkri skrifar fölur, dulur

Spor þín telur og eitt orð

Ertu tilbúinn að fara um borð?

Ég sit við krossinn og kyssi þig

Köld sorgin hún bítur

Lögmál Guðs í kvöl þína grafið

Ég græt því ég veit þú hlýtur

Að vita að englarnir fljúga ekki í nótt

Og leiðin liggur ekki heim

Hvíslandi raddir, hvítir sokkar

Harður stóll, þínir blautu lokkar

Morfínhaf sem hylur taugar

Í höfði þínu vakna draugar

Sem finna ekki leiðina heim

Ferð þín er hafin og báturinn bíður

Sál þín eins og skuggi líður

Á hvítu líni þú liggur hrein

Í nótt þú siglir frá landi ein

Og leiðin liggur ekki heim

Ég sit við krossinn og kyssi þig

Köld sorgin hún bítur

Lögmál Guðs í kvöl þína grafið

Ég græt því ég veit þú hlýtur

Að vita að englarnir fljúga ekki í nótt

Og leiðin liggur ekki heim

Að vita að englarnir fljúga ekki í nótt

Og leiðin liggur ekki heim

Að vita að englarnir fljúga ekki í nótt

Og leiðin liggur ekki heim

Leiðin liggur ekki heim by Bubbi Morthens - Lyrics & Covers