menu-iconlogo
logo

Stúlkan sem starir á hafið (Live)

logo
Paroles
Ég kom í þorpið kvöld eitt um sumar

klukkan tólf í miðnætursól,

ég fékk herbergi upp á verbúð, það virtist í lagi

með vask, borði og stól.

Um morguninn gekk ég út á götuna að skoða,

sá gömul vélhræ liggja útá lóð,

ég sá hús sem áttu sögu og sum voru að deyja,

það seytlaði ú gluggunum blóð.

Það er stelpa sem starir á hafið

stjörf með augun mött

hún stendur öll kvöld og starir á hafið

stóreyg, dáldið fött.

Ég sá hana dansa með döpur græn augu,

dansa líkt og hún væri ekki hér,

hún virtist líða um í sínum lokaða heimi,

læstum fyrir þér og mér.

Hver hún var vissi ég ekki en alla ég spurði

sem áttu leið þar hjá

þar til mér var sagt að einn svartan vetur hefði

sjórinn tekið manninn henni frá.

Þetta er stelpan sem starir á hafið

stjörf með augun mött

hún stendur öll kvöld og starir á hafið

stóreyg, dáldið fött.

Þessi starandi augu, haustgræn sem hafið,

ég horfði ofan í djúpið eitt kvöld,

þau spegluðu eitthvað sem aðeins hafið skildi

angurvær, tælandi og köld.

Uppi á hamrinum stóð hún og starði yfir fjörðinn

stundum kraup hún hvönninni í,

þar teygaði hún vindinn og villt augun grétu

meðan vonin hvarf henni á ný.

Þetta sumar var fallegt, ég fékk nóg að vinna,

það fiskaðist og tíðin var góð.

En ég stóð og hugsaði og starði út um glugga

um stelpuna sem var talin óð.

Eina nótt hrökk ég upp í skelfingu og skildi

hvað skreið um í hjarta mér.

Það sem virtist vera í fyrstu bara forvitni hjartans

hafði fundið ástina hér.

Í stelpunni sem starir á hafið

stjörf með augun mött

hún stendur öll kvöld og starir á hafið

stóreyg, dáldið fött.

Daginn eftir fór ég með fyrsta bílnum

sem flutti mig suður á leið.

Ég leit aldrei til baka, ég bölvaði í hljóði

og í brjóstinu var eitthvað sem sveið.

Er ég les það í blaði að bátur hafi farist

þá birtist mynd í huga mér

þar sem hún stendur og starir á hafið

starir þar til birtu þver.

Þetta er stelpan sem starir á hafið

stjörf með augun mött

hún stendur öll kvöld og starir á hafið

stóreyg, dáldið fött.

Ég man stelpuna sem starði á hafið

stjörf með augun mött

hún stendur öll kvöld og starir á hafið

stóreyg, dáldið fött.