menu-iconlogo
logo

Ástrós

logo
Lirik
Composer : Bubbi Morthens

Hann var látinn er löggan kom á staðinn

lagði á mig hendur, sálin fauk

Hann var skrímsli og skaðinn sem hann olli

gaf mér engr annarra kosta völ

Varð að vernda börnin rjúfa þessa hlekki

þeir fella óðan hund, er það 'kki?

Hann lá á gólfinu á grúfu við borðið

Fyrir utan blikkandi blá ljós

Í augum hennar var ómennið horfið

Hún sagði að nafnið sitt væri Ástrós.

Varð að vernda þau, brjóta þessa hlekki

þeir drepa óðan hund, er það 'kki?

Fyrstu árin, fyrstu tárin

fyrstu sárin, aftur og aftur

Fyrsta höggið, fyrsta sjokkið

fyrsta fyrirgefðu, aftur og aftur.

Þegar hann drakk, þá dó í honum ljósið

þá urðu augun hans sem svört af nótt.

Ég hélt þennan dag, myndi ég deyja

ég stakk hann ótal sinnum þar til allt varð hljótt.

Hvenær drepur maður mann og hvenær ekki

ég stakk óðan hund er það 'kki?

Fyrstu árin, fyrstu tárin

fyrstu sárin, aftur og aftur

Fyrsta höggið, fyrsta sjokkið

fyrsta fyrirgefðu, aftur og aftur.

Fyrstu árin, fyrstu tárin

fyrstu sárin, aftur og aftur

Fyrsta höggið, fyrsta sjokkið

fyrsta fyrirgefðu, aftur og aftur.

Fyrstu árin, fyrstu tárin

fyrstu sárin, aftur og aftur

Fyrsta höggið, fyrsta sjokkið

fyrsta fyrirgefðu, aftur og aftur.

fyrsta fyrirgefðu, aftur og aftur, fyrsta fyrirgefðu, aftur og aftur.

Ástrós oleh Bubbi Morthens - Lirik dan Liputan